Jæja góðir hálsar. Hér er það Guðrún sem talar. Nú styttist all svakalega í heimkomu. Minna en 3 vikur! Þetta er svakalegt alveg hreint! Við erum þvílíkt spennt og getum ekki beðið eftir að komast og hitta ykkur. Við höfum það nú svo sem fínt hér, það er ekki vandamálið!
Síðasta helgi var svaka fín, fórum í julefrokost og bökuðum piparkökur. Svo á mánudaginn elduðum við ekta danskan jólamat fyrir matarklúbbinn. Það gekk bara prýðisvel, við gerðum nú reyndar fátt annað en að skræla kartöflur (5 kíló) og vaska upp. Sósan misheppnaðist víst eitthvað en það reddaðist. Maturinn var svaka fínn, pörusteik (flæskesteg), rauðkál, karamellukartöflur og ég veit ekki hvað og hvað. Reyndar var þetta þriggja rétta máltíð með fiskefillet í forrét og risalamange í eftirrétt. Sko þessi fiskefillet eru nú frekar ógeðsleg samt. Þetta er bara rauðspretta í raspi og ég verð að segja það að rauðspretta er eiginlega bara frekar vond á bragðið. Svo er þetta sett á rúgbrauð, sítróna kreist yfir og svo er þetta toppað með slettu af remúlaði! Alger bomba!!
Talandi um fisk, þá keyptum við um daginn frosin flök sem við vonuðumst til að væri ýsa. Baldur tók fram meistara kokkataktana og steikti fiskinn á pönnu. Í fyrsta lagi rýrnaði fiskurinn um 50% og í öðru lagi var hann viðbjóðslegur á bragðið. Svona feitt bragð af honum. Eftir að við smökkuðum fiskefillet í julefrokost er ég farin að hallast að því að þetta hafi verið rauðspretta því bragðið var skuggalega líkt. Baldur sem hafði kryddað þetta fullt og svaka vel, en það var bara skítabragð af þessu! Það er greinilegt að íslenskur fiskur er bara sá besti! Vonandi munum við fá soðna ýsu við tækifæri í jólafríinu :) erum orðin heldur óþreygjufull að fá fisk!
En piparkökubaksturinn gekk heldur betur vel. bökuðum slatta af kökum sem kláruðust á.. 2 dögum! Við vorum ekkert smá flink, skárum út alls konar myndir og svona. Við settum myndir af þessu á myndasíðuna okkar. þar má líka finna myndir úr julefrokostinum og svo af matseldinni. Allt að verða viltaust!!!
En hér sit ég ein og skrifa. Baldur er svei mér þá bara farinn að sofa! Hann hefur það ekki eins náðugt og ég, sem sef fram að hádegi alla daga! Hann fór í skólann í morgun kl. 9 og þurfti að fara á fætur kl. 8. Þannig að karlinn var þreyttur og fór að sofa um kl. Hálf 11 sem er frekar snemmt á þessum bæ þar sem einhverra hluta vegna við förum alltaf að sofa um 2 leytið. Það er aldrei ætlunin að fara svona seint að sofa, einhverra hluta vegna er klukkan alltaf skyndilega orðin svona mikið! Tíminn bara flýgur áfram!
Ég fer í síðasta prófið 10. Desember og það er munnlegt próf. Vonandi mun það ganga vel. svo fékk ég bréf frá hjúkkuskólanum um daginn og mér er boðið á einhverja samkomu 9. Desember. Þar mun ég hitta kennarana og verðandi samnemendur og spjalla smá við þá. Það er ekkert nema spennandi og þá fæ ég líka tækifæri til að æfa mig fyrir munnlega prófið!
Við erum svei mér þá komin í smá jólaskap! Hlustum á jólalög og höfum kveikt á jólakertum( eitt með jólalykt og annað sem telur dagana fram að jólum). En það er voða lítið um jólaskraut hjá okkur. Við eigum einn jólakall sem Baldur vann í jólapakkaleik í julefrokost. Svo vorum við að leita að seríum um daginn en þær eru allar svo dýrar og ljótar að við bara höfum eiginlega engann áhuga á að kaupa þannig. Við viljum bara hafa svona eins og eru á Íslandi, annað hvort marglitaðar eða hvítar. En við verðum víst bara að redda þeim fyrir næstu jól :)
En jæja, ég ætti kannski að fara að huga að svefni líkt og Baldur. Langaði bara aðeins að láta ykkur vita af okkur. Já og endilega kíkið nú á myndasíðuna og ekki gleyma að kommenta :)
Hafið það sem best elsku krútt :)
Kærar kveðjur,
Baldur og Guðrún
Thursday, December 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
Gæfi mikið fyrir að dúllast með ykkur í eldamennsku og piparkökugerð akkúrat núna!
Gangi þér rosalega vel í munnlega prófinu.. átt eftir að rúlla því upp.. og gangi þér líka vel baldur í skólanum :)
Hlakka últra mikið til að sjá ykkur!
:*
Vá,Þið eruð orðin alveg svakalega myndarleg í eldamennsku og bakstri,þið eruð greinilega á fullu þarna í dansken. Gangi ykkur vel í náminu. Hlakka rosa til að fá ykkur heim.Stórt klemm og knús,love you:)
Oh, þið eruð svo miklar dúllur... Galdrið bara fram risamáltíðir eins og þið hafið aldrei gert neitt annað! Hehe :) En ég hlakka megamega mikið til að sjá ykkur sætu :*
NOSTALGÍA það magnaðist bara og magnaðist en kertið sem telur dagana fór alveg með mig!!
En já gangi þér vel í munnlega danska pía!
Ég get ómögulega beðið eftir að sjá ykkur myndarlega par:)
Ohh já mig langar til DK við að lesa bloggið !! Og ekki slæmt að skella upp þriggja rétta máltíð með flæskesteg og læti. ;)
En gangi ykkur vel á lokasprettinum dúllur :)
Kv. Björg
Ojj rauðspretta ?!?! ég veit um eina konu sem elskar fisk meira en allan mat og hún er pottþétt til í að hafa soðna ýsu með kartöflum og smjeri + fretbrauð !! skal meira að segja borða þennan eðal mat með ykkur ef þið viljið :D
hlakka mest til að sjá ykkur og gangi ykkur vel í prófunum !!
ást og friður
Post a Comment